Fotbolti.net
01.01.19 - 22:45
Arnar Helgi Magnússon

Wolves fær kantmann úr spænsku fjórðu deildinni (Staðfest)

Wolves fær kantmann úr spænsku fjórðu deildinni (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Wolves hefur fengið til sín hinn átján ára David Wang frá Jumilla B sem leikur í fjórðu deild á Spáni.
Wang er átján ára gamall en hann stoppaði einungis í Wolves til þess að skrifa undir áður en hann hélt til Portúgals en hann verður lánaður til Sporting CP út leiktíðina.

Wang ólst upp í bænum Cuenca á Spáni en hann spilaði aðallega futsal fótbolta á sínum yngri árum. Hann spilar á hægri kanti.

Leikmaðurinn á ættir að rekja til Kína og talar hann Kínversku, ensku og spænsku reiprennandi.



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.