Fotbolti.net
01.02.19 - 08:10
Magnús Már Einarsson

Andri Fannar til Bologna á láni (Staðfest)

Andri Fannar Baldursson.

Andri Fannar Baldursson.

Canon

Mynd: Breiðablik

Ítalska félagið Bologna hefur fengið miðjumanninn efnilega Andra Fannar Baldursson í sínar raðir frá Breiðabliki á láni.

Hinn 17 ára gamli Andri Fannar var á reynslu hjá Bologna í desember og í kjölfarið ákvað félagið að fá hann í sínar raðir.

Andri Fannar verður á láni hjá Bologna fram á sumar til að byrja með og spilar með varaliði félagsins. Bologna á síðan forkaupsrétt á honum.

Bologna er í 18. sæti í Serie A en liðið hefur sjö sinnum áður orðið ítalskur meistari.
Andri Fannar spilað sinn fyrsta leik í Pepsi-deildinni síðastliðið sumar þegar hann kom inn á sem varamaður í 4-0 sigri Breiðabliks á KA í lokaumferðinni.

Á ferli sínum hefur Andri skorað tvö mörk í nítján leikjum með U17 ára landsliðinu og þá á hann einnig að baki leiki með U18 ára liði Íslands.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.