01.02.19 - 09:15
Ívan Guðjón Baldursson
Aston Villa fær Tom Carroll lánaðan (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Aston Villa er búið að staðfesta komu Tom Carroll á lánssamningi frá Swansea út tímabilið.
Swansea hefur verið að losa sig við mikið af leikmönnum til að lækka launakostnað og var Leroy Fer næstum því farinn til Villa ásamt Carroll. Jefferson Montero var einnig lánaður út, til West Brom, í gærkvöldi.
Carroll er 26 ára miðjumaður sem gekk í raðir Swansea fyrir tveimur árum eftir níu ára dvöl hjá Tottenham.
Carroll var mikilvægur partur af U21 landsliðshóp Englendinga frá 2013 til 2015 en þótti ekki nægilega góður fyrir ensku toppbaráttuna og á enn eftir að spila fyrir A-landsliðið.
Aston Villa átti góðan gluggadag í gær og er þetta þriðji leikmaðurinn sem kemur inn eftir Tyrone Mings og Frederic Guilbert, en sá síðarnefndi kemur ekki til félagsins fyrr en næsta sumar.