Fotbolti.net
01.02.19 - 00:21
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Batshuayi til Crystal Palace (Staðfest)

Batshuayi til Crystal Palace (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Belgíski sóknarmaðurinn Michy Batshuayi mun klára tímabilið á láni hjá Crystal Palace. Það tókst hjá Palace á síðustu stundu að fá Batshuayi frá Chelsea.
Batshuayi varði fyrri helmingi tímabilsins á láni hjá Valencia en gekk illa þar og ákvað spænska félagið að skila honum í janúar.

Félög víðsvegar um Evrópu hafa verið í sambandi við Chelsea til að reyna að fá Batshuayi til sín, en Crystal Palace tókst að krækja í hann. Hann ætti að geta reynst Palace mikill liðsstyrkur.

Batshuayi er aðeins 25 ára gamall og hefur hann skorað 12 mörk í 22 landsleikjum. Skoraði hann til að mynda bæði mörk Belgíu í 2-0 sigri á Íslandi í Þjóðadeildinni á síðasta ári.

Batshuayi var frábær á seinni hluta síðasta tíambils á láni hjá Borussia Dortmund.

Crystal Palace er í 15. sæti ensku úrvalsdeildarinnar, fjórum stigum frá fallsæti.



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.