Fotbolti.net
01.02.19 - 07:15
Ívan Guðjón Baldursson

Frankfurt festir kaup á Almamy Toure (Staðfest)

Frankfurt festir kaup á Almamy Toure (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Eintracht Frankfurt staðfesti komu tveggja ungra varnarmanna í gær og gerðu þeir báðir langtímasamninga við félagið.
Almamy Toure kemur frá Mónakó og skrifar undir fjögurra og hálfs árs samning. Kaupverð er ótilgreind en talið nema um 10 milljónum evra.

Toure er 22 ára hægri bakvörður og á 80 leiki að baki fyrir Mónakó sem er hans uppeldisfélag. Hann lék 15 deildarleiki er liðið varð Frakklandsmeistari fyrir tveimur árum og 20 leiki á síðasta tímabili.

Hinn 19 ára gamli Lucas Silva Melo er þá búinn að skrifa undir samning til 2024. Hann kemur frá Sao Paulo í Brasilíu fyrir 1,5 milljón evra.

Frankfurt er í harðri Evrópubaráttu í þýsku deildinni, þremur stigum frá Meistaradeildarsæti.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.