Fotbolti.net
01.02.19 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

James Bree til Ipswich (Staðfest)

James Bree til Ipswich (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Ipswich fékk í gær hægri bakvörðinn James Bree frá Aston Villa á láni út tímabilið.
Bree hefur leikið 11 leiki fyrir Villa á þessu tímabili, en hann var fyrir aftan Alan Hutton í goggunarröðinni hjá Villa.

Hann gekk í raðir Villa frá Barnsley árið 2017 fyrir 3 milljónir punda og mun nú fá byrjunarliðsfótbolta hjá Ipswich sem er í miklum vandræðum í Championship-deildinni. Ipswich er sem stendur á botni deildarinnar sjö stigum frá öruggu sæti.

Bree mun leika í treyju númer 41 hjá Ipswich.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.