Fotbolti.net
01.02.19 - 00:34
Arnar Helgi Magnússon

Lazar Markovic til Fulham (Staðfest)

Lazar Markovic til Fulham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Lazar Markovic er genginn til liðs við Fulham en hann kemur á frjálsri sölu frá Liverpool. Fulham gekk frá skiptunum á síðustu mínútum gluggans sem að lokaði klukkan 23:00 í kvöld.
Markovic kom til Liverpool árið 2014 en hann hann hefur einungis leikið 34 leiki fyrir liðið og skorað í þeim þrjú mörk.

Hann er búinn að vera sendur á lán hingað og þangað, til liða á borð við Fenebache, Sporting CP, Hull City og nú síðast Anderlecht.

Aleksandar Mitrović, leikmaður Fulham, gaf Markovic góð meðmæli en þeir spiluðu saman hjá Partizan Belgrade á sínum tíma.

„Liverpool óskar Lazar alls hins besta hjá nýja félaginu," segir á heimasíðu Liverpool.




Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.