01.02.19 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Nottingham Forest fékk Pele (Staðfest)

Mynd: Nottingham Forest

Mynd: Nottingham Forest
Nottingham Forest fékk til sín tvo leikmenn á gluggadeginum í gær. Annar þeirra er líklega með skemmtilegasta nafn af öllum leikmönnunum sem skiptu um félag í gær, en hann vill einfaldlega láta kalla sig Pele.
Judilson Mamadu Tuncará Gomes, einnig þekktur sem Pele, var í gær lánaður frá Mónakó til Nottingham Forest.
Hann er 27 ára gamall miðjumaður sem hefur meðal annars verið á mála hjá AC Milan, Genoa og Benfica á ferli sínum.
Hinn leikmaðurinn sem Forest fékk er hinn 24 ára gamli framherji, Leo Bonatini. Hann kemur frá Úlfunum. Bonatini hefur skorað eitt mark í níu leikjum á þessu tímabili fyrir Úlfanna.
Á síðasta tímabili skoraði hann 12 mörk hjá hjálpaði Úlfunum að komast upp í ensku úrvalsdeildina.
Nottingham Forest er í níunda sæti Championship-deildarinnar.