Fotbolti.net
01.02.19 - 09:17
Arnar Helgi Magnússon

Sverrir Ingi genginn til liðs við PAOK (Staðfest)

Mættur til PAOK.

Mættur til PAOK.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sverrir Ingi Ingason er genginn til liðs við gríska stórliðið PAOK. Þetta var staðfest í dag en félagaskiptin gengu í gegn áður en félagaskiptaglugginn lokaði í gærkvöldi. Hann kemur frá rússneska félaginu Rostov.
Sverrir var staddur með Rostov í æfingabúðum í Katar en hann flaug til Grikklands í gær til þess að skrifa undir. Vetrarfrí er nú í rússnesku deildinni.

PAOK ætlaði að hætta við kaupinn því verðmiðinn var of hár en að lokum náðu félögin saman um verðið á leikmanninum.

Sverrir kostar 4 milljónir evra, eða rúmlega 550 milljónir íslenskra króna, og mun Rostov fá 25% af kaupverðinu þegar hann skiptir næst um félag. Breiðablik mun fá 20-27 milljónir fyrir félagaskiptin en hann er uppalinn hjá félaginu.

Sverrir er 25 ára gamall og á 26 A-landsleiki að baki fyrir Ísland. Hann hefur verið mikilvægur hlekkur í liði Rostov á tímabilinu.

PAOK er með átta stiga forystu í grísku deildinni en tvisvar hefur félagið orðið grískur meistari.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.