Fotbolti.net
01.02.19 - 12:00
Magnús Már Einarsson

Will Grigg í Sunderland eftir átta tilboð (Staðfest)

On fire!

On fire!

Canon

Mynd: Getty Images

Sunderland náði að kaupa Norður-írska framherjann Will Grigg frá Wigan rétt áður en félagaskiptaglugginn lokaði í gærkvöldi.

Sunderland hafði verið á eftir Grigg allan janúar mánuð en félagið gerði átta tilboð í hann áður en Wigan samþykkti sölu.

Wigan, sem er í Championship deildinni, seldi Grigg á fjórar milljónir punda til Sunderland sem er í toppbaráttu í C-deildinni.
Grigg elskar sjálfur C-deildina en á þremur heilum tímabilum þar á ferlinum hefur hann skorað 62 mörk.

Hinn Norður-Írski Grigg varð þekktur á EM í Frakklandi árið 2016 þegar lag um hann sló eftirminnilega í gegn.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.