01.02.19 - 07:45
Ívan Guðjón Baldursson
Yennaris seldur til Kína (Staðfest) - Heitir núna Li Ke

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Nico Yennaris er genginn til liðs við Beijing Guoan í kínverska boltanum eftir að félagið keypti hann af Brentford í ensku Championship deildinni.
Guoan borgar 5 milljónir punda fyrir miðjumanninn sem kom upp í gegnum unglingastarfið hjá Arsenal og spilaði fjóra leiki fyrir félagið.
Knattspyrnufélög í Kína mega aðeins vera með nokkra erlenda leikmenn í leikmannahópnum en Yennaris flokkast ekki sem útlendingur því móðurætt hans er kínversk. Hann heitir nú kínversku nafni þar sem hann er orðinn ríkisborgari og verður því þekktur sem Li Ke héðan í frá.
Li Ke er 25 ára og gæti tekið uppá því að spila með kínverska landsliðinu, en hann á 10 leiki að baki fyrir yngri landslið Englands.
„Ég er ótrúlega glaður að hafa skrifað undir hjá Beijing Sinobo Guoan sem kínverskur ríkisborgari. Þetta er spennandi tækifæri fyrir mig," sagði Li Ke við undirritunina.