01.03.22 - 15:33
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Zoran Plazonic í Reyni (Staðfest) - Króatískur markvörður á leiðinni

Plazonic í lei með Vestra árið 2018.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fufura verður áfram í Reyni

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Plazonic í lei með Vestra árið 2018.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Reynir Sandgerði er að styrkja sig fyrir komandi átök í 2. deild karla. Króatinn Luka Jagecic tók við þjálfun liðsins í vetur og er búinn að ná í tvo samlanda sína.
Sá fyrri er Zoran Plazonic sem kemur frá nágrönnunum í Njarðvík. Hann kom fyrst til Íslands árið 2018 og lék í þrjú tímabil með Vestra áður en hann gekk í raðir Njarðvíkur.

Hann er 33 ára miðjumaður sem lék fjórtán leiki með Njarðvík í fyrra.
Á leiðinni er svo 24 ára gamall markvörður sem heitir Ivan Jelic sem kemur frá NK Hrvace í Króatíu sem spilar í þriðju efstu deild. Hann á að baki 41 leik í næst efstu deild Króatíu á sínum ferli.
Þá er ljóst að þeir Ivan Prskalo, Strahinja Pajic og Elton Barros (Fufura) verða áfram með liðinu í sumar.
Loks er Grímur Andri Magnússon kominn með leikheimild með Reyni. Hann kemur frá Keflavík.
Sjá einnig:
Jökull lánaður til Reynis (Staðfest) - Var öflugur boltastrákur
Reynismenn fá tvo leikmenn frá Keflavík (Staðfest)

@ReynirSandgerdi að styrkja sig. Zoran Plazonic frá Njarðvík og Króatískur markmaður úr 1.deild í Króatíu! Prskalo, Pajic og Fufura allir áfram #ástríðan
— Ástríðan Podcast (@AstriPodcast) March 1, 2022

Fufura verður áfram í Reyni

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð