01.04.20 - 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Halli hleypur apríl - Hleypur fyrir kvennaliðin á Akureyri


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Haraldur Ingólfsson ætlar sér að hlaupa til góðs í aprílmánuði.
Halli hleypur áheitahlaup til að styrkja Þór/KA og Hamrana, knattspyrnulið kvenna á Akureyri en knattspyrnustarf kvenna á Akureyri hefur verið afar öflugt í gegnum tíðina.
Halli hleypur áheitahlaup til að styrkja Þór/KA og Hamrana, knattspyrnulið kvenna á Akureyri en knattspyrnustarf kvenna á Akureyri hefur verið afar öflugt í gegnum tíðina.
Halli ætlar að hlaupa 310 kílómetra á þessum 30 dögum aprílmánaðar. „Upphaf þessa verkefnis má rekja til þess að leikmenn liðanna buðu sokka til sölu í febrúar og mars í fjáröflunarskyni og ákvað Halli að hlaupa einn kílómetra fyrir hvert selt par," segir á heimasíðu Þórs.
Upplýsingar um hvernig má styrkja og hvernig má fylgjast með má sjá hér að neðan.
Upplýsingar um hvernig má styrkja og hvernig má fylgjast með má sjá hér að neðan.
— Haraldur Ingólfsson (@Halli_Ingolfs) March 31, 2020
Heimild: Þór
