Fotbolti.net
01.04.26 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Heimsmeistari í teymið hjá Tottenham?

Alessandro Nesta.

Alessandro Nesta.

Canon

Mynd: EPA

Roberto De Zerbi er í viðræðum um að taka við sem næsti stjóri Tottenham.

Samkvæmt fréttum frá Ítalíu hefur De Zerbi jafnframt boðið Alessandro Nesta, sem var í heimsmeistaraliði Ítalíu árið 2006, hlutverk í þjálfarateymi sínu í Norður-London.
Blaðamaðurinn Nicolò Schira hjá Tuttosport segir De Zerbi hafa boðið Nesta sæti í þjálfarateymi sínu hjá Tottenham.

Nesta var frábær miðvörður á sínum ferli en eftir að skórnir fóru upp á hillu hefur hann þjálfað Miami FC, Perugia, Frosinone, Reggiana og Monza.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.