Ítalía mun missa af þriðja heimsmeistaramótinu í röð þar sem þeir töpuðu gegn Bosníu í úrslitaleik í umspili um að komast inn á HM í sumar í kvöld.
Leikurinn fór alla leið í vítaspyrnukeppni þar sem Bosnía hafði betur. Ítalía, sem varð heimsmeistari 2006, mun því missa af þriðja heimsmeistaramótinu í röð sem er í raun ótrúlegt fyrir eins mikla fótboltaþjóð.

Það sem gerir þetta tap enn verra fyrir Ítali er hvernig liðið brást við að mæta Bosníu.
Ítalska sjónvarpið myndaði viðbrögð ítalska liðsins þegar kom í ljós að Bosnía vann Wales í undanúrslitum umspilsins. Óhætt er að segja að Ítalir hafi verið ánægðir að mæta Bosníu.
En svo kom á daginn að Bosnía fer á HM en ekki Ítalía.
????JUST IN: Footage leaked of the Italian team celebrating after watching Bosnia and Herzegovina win on penalties...
— Polymarket Sports (@PolymarketSport) March 27, 2026
Italy will now play Bosnia for a final World Cup spot.pic.twitter.com/ZXBBlBahkd