Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
banner
fimmtudagur 21. mars
EM umspilið
fimmtudagur 14. mars
Lengjubikar karla - Undanúrslit
sunnudagur 10. mars
Enska úrvalsdeildin
þriðjudagur 27. febrúar
Landslið kvenna - Þjóðadeild umspil
föstudagur 23. febrúar
fimmtudagur 1. febrúar
Úrslitaleikur Reykjavíkurmótsins
fimmtudagur 18. janúar
Vináttulandsleikur
sunnudagur 14. janúar
fimmtudagur 14. desember
Sambandsdeild UEFA
föstudagur 8. desember
Úrslitaleikur Bose-mótsins
þriðjudagur 5. desember
Þjóðadeild kvenna
mánudagur 4. desember
Umspil fyrir HM U20
föstudagur 1. desember
Þjóðadeild kvenna
fimmtudagur 30. nóvember
Sambandsdeild UEFA
sunnudagur 19. nóvember
Undankeppni EM
fimmtudagur 9. nóvember
Sambandsdeild UEFA
þriðjudagur 31. október
Landslið kvenna - Þjóðadeild
föstudagur 27. október
fimmtudagur 26. október
Sambandsdeild UEFA
miðvikudagur 18. október
Forkeppni Meistaradeildar kvenna
þriðjudagur 17. október
Undankeppni EM
föstudagur 13. október
þriðjudagur 10. október
Meistaradeild kvenna
sunnudagur 8. október
Besta-deild karla - Efri hluti
fimmtudagur 5. október
Sambandsdeild UEFA
mánudagur 2. október
Besta-deild karla - Efri hluti
sunnudagur 1. október
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
föstudagur 29. september
Fótbolti.net bikarinn
þriðjudagur 26. september
Landslið kvenna - Þjóðadeild
mánudagur 25. september
Besta-deild karla - Efri hluti
sunnudagur 24. september
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
Lengjudeild karla - Umspil
laugardagur 23. september
Besta-deild karla - Neðri hluti
Fótbolti.net bikarinn
föstudagur 22. september
Landslið kvenna - Þjóðadeild
fimmtudagur 21. september
Sambandsdeildin
miðvikudagur 20. september
Besta-deild karla - Efri hluti
Lengjudeild karla - Umspil
Besta-deild karla - Neðri hluti
mánudagur 18. september
fimmtudagur 14. september
Besta-deild kvenna - Efri hluti
miðvikudagur 13. september
þriðjudagur 12. september
Undankeppni EM U21 landsliða
mánudagur 11. september
Undankeppni EM
sunnudagur 10. september
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
þriðjudagur 19. mars
CHAMPIONS LEAGUE: Playoffs - Women
Ajax W - Chelsea W - 17:45
SL Benfica W - Lyon - 20:00
banner
mán 01.jún 2020 11:30 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magazine image

Spá Fótbolta.net - 8. sæti: Fylkir

Sérfræðingar Fótbolta.net spá því að Fylkismenn endi í 8. sæti í Pepsi Max-deildinni í sumar. Álitsgjafar spá í deildina en þeir raða liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær 12 stig, annað sæti 11 og svo koll af kolli niður í tólfta sæti sem gefur eitt stig. Fylkir endar í áttunda sæti ef spáin rætist.

Ólafur Ingi Skúlason.
Ólafur Ingi Skúlason.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Helgi Valur Daníelsson.
Helgi Valur Daníelsson.
Mynd/Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Ragnar Bragi Sveinsson.
Ragnar Bragi Sveinsson.
Mynd/Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Atli Sveinn Þórarinsson þjálfari.
Atli Sveinn Þórarinsson þjálfari.
Mynd/Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Valdimar Þór Ingimundarson.
Valdimar Þór Ingimundarson.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. ?
8. Fylkir 49 stig
9. ÍA 44 stig
10. HK 43 stig
11. Grótta 20 stig
12. Fjölnir 14 stig

Um liðið: Fjölskyldufélagið Fylkir endaði í áttunda sæti á síðasta tímabili og er spáð sama sæti í ár. Ef listinn yfir komna og farna er skoðaður þá er erfitt að sjá liðið ná að bæta árangur sinn frá síðasta ári.

Þjálfarar - Atli Sveinn Þórarinsson og Ólafur Stígsson: Árbæingar ákváðu að skipta um þjálfara og Helgi Sigurðsson fékk ekki áframhaldandi samning þrátt fyrir gott starf hjá félaginu undanfarin ár. Atli Sveinn Þórarinsson var ráðinn og er aðalþjálfari ásamt Ólafi Stígssyni. Þá var Ólafur Ingi Skúlason gerður að spilandi aðstoðarþjálfara. Efasemdarraddir hafa heyrst um þessar þjálfarahræringar hjá Fylkismönnum en það er þeirra að þagga niður í þeim röddum.

Styrkleikar: Liðið er byggt upp á sama kjarna og síðustu ár og eins og venja er í Árbænum eru heimamenn með appelsínugult blóð í æðum margir. Það er kraftur í liðinu og menn eru tilbúnir að fórna sér fyrir félagið. Leikmenn þekkja hvorn annan út og inn, eitthvað sem gæti reynst liðinu vel í samkeppninni eftir að allt var stöðvað vegna heimsfaraldursins. Fólk er ekki að búast við miklu frá Fylki og það gæti hjálpað liðinu að fara án pressu inn í mótið.

Veikleikar: Varnarleikur liðsins var mjög dapur í fyrra og aðeins botnlið ÍBV fékk á sig fleiri mörk. Nýtt þjálfarateymi þarf nauðsynlega að stöðva lekann og vonast til að gera það án þess að taka skemmtanagildið og Fylkiskraftinn úr spilamennskunni. Aðalmarkvörður liðsins, Aron Snær Friðriksson, lenti í erfiðum meiðslum í fyrra og spurning hvernig hann kemur til baka. Þá eru líka stór spurningamerki á hinum enda vallarins en þeirra markahæsti leikmaður síðasta sumar, Geoffrey Castillion, er ekki lengur til staðar og Kolbeinn Finnsson kemur ekki aftur.

Lykilmenn: Ólafur Ingi Skúlason og Valdimar Þór Ingimundarson. Ólafur er í nýju hlutverki sem spilandi aðstoðarþjálfari. Er algjör lykilmaður hjá Fylki, sama hvort hann mun spila á miðjunni eða í varnarlínunni. Reynsla hans og Helga Vals Daníelssonar vegur þungt. Valdimar er stórskemmtilegur ungur sóknarleikmaður sem hefur vaxið hratt og ef hann nær að bæta stöðugleika sinn enn frekar verður hann hættulegt vopn í Árbænum.

Gaman að fylgjast með: Djair Parfitt-Williams er vængmaður með mikla tæknilega getu og spennandi að sjá hvernig varnarmönnum deildarinnar gengur að glíma við hann. Á einn leik fyrir aðallið West Ham. Þá verður spennandi að sjá hvernig nýja fyrirliðanum, Ragnari Braga Sveinssyni, vegnar í nýrri stöðu en hann er orðinn bakvörður.

Spurningarnar: Hvaða handbragð kemur frá nýja þjálfaratríóinu? Verður varnarleikurinn betri en í fyrra? Hver ætlar að skora mörkin nú þegar Castillion er farinn?

Völlurinn: Würth völlurinn hefur tekið stakkaskiptum með nýju stúkunni og mun skemmtilegra að mæta í Lautina í dag en áður. Það er oft góður 'fílingur' í Árbænum.

Fyrirliðinn segir - Ragnar Bragi Sveinsson
„Það er eðlilegt að spá okkur í 8. sæti. Endað þarna síðastliðin tvö ár. Við ætlum að gera atlögu að betri árangri en spáin er mjög eðlileg. Mér líst hrikalega vel á deildina. Allir eru hrikalega spenntir að fara af stað, geggjað að vera byrjaðir að taka æfingaleiki. Ég hef ekki áhyggjur ef deildin skiptist í tvennt. Ef það gerist þá verður það bara þannig. Þetta verður ábyggilega svolítið skrítið mót þar sem liðin eru miklu minna 'drilluð' sem gerir þetta bara spennandi."

Komnir:
Arnar Darri Pétursson frá Þrótti R.
Djair Parfitt-Williams frá Slóveníu
Þórður Gunnar Hafþórsson frá Vestra

Farnir:
Ari Leifsson til Stromsgödset
Emil Ásmundsson í KR
Geoffrey Castillion til Indlands
Leó Reynisson í ÍA
Stefán Logi Magnússon

Fyrstu fimm leikir Fylkis:
15. júní Stjarnan - Fylkir
21. júní Fylkir - Breiðablik
29. júní Fylkir - Grótta
4. júlí Fjölnir - Fylkir
9. júlí Fylkir - KA

Sjá einnig:
Hin hliðin - Þórður Gunnar Hafþórsson
Hin hliðin - Valdimar Ingimundarson

Leikmenn Fylkis sumarið 2020:
Aron Snær Friðriksson
Arnar Darri Pétursson
Andrés Már Jóhannesson
Arnór Gauti Ragnarsson
Aron Breki Aronsson
Ásgeir Eyþórsson
Birkir Eyþórsson
Daníel Steinar Kjartansson
Djair Parfitt-Williams
Hákon Ingi Jónsson
Leonard Sigurðsson
Nikulás Val Gunnarsson
Orri Sveinn Stefánsson
Ragnar Bragi Sveinsson
Sam Hewson
Stígur Annel Ólafsson
Valdimar Örn Emilsson
Valdimar Þór Ingimundrson
Ólafur Ingi Skúlason
Ólafur Kristófer Helgason
Þórður Gunnar Hafþórsson
*Óstaðfestur leikmannalisti. Staðfestum lista verður bætt við.

Spámennirnir: Arnar Daði Arnarsson, Benedikt Bóas Hinriksson, Elvar Geir Magnússon, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Gunnar Birgsson, Hafliði Breiðfjörð, Ingólfur Sigurðsson, Magnús Már Einarsson, Sverrir Einarsson, Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke, Tómas Þór Þórðarson
Athugasemdir
banner
banner