Alisson vill fara til Juventus - Real Madrid sýnir Rice áhuga - Stórlið berjast um Rafel Leao
banner
   mán 01. júní 2026 21:17
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Helsta skotmark Liverpool vill fara til PSG
Mynd: EPA
Yan Diomande, leikmaður RB Leipzig, vill fara til PSG samkvæmt heimildum franska miðilsins Foot Mercato.

Þessi 19 ára gamli Fílbeinsstrendingur er á óskalista Liverpool en hann er hugsaður sem arftaki Mohamed Salah.

Það er hins vegar talið að hann hafi samþykkt að ganga til liðs við PSG sem vann Meistaradeildina, annað árið í röð, um helgina. Hann er spenntur fyrir Liverpool en PSG er í efsta sæti hjá honum.

PSG og Leipzig eiga eftir að ná samkomulagi um kaupverð og PSG er ekki tilbúið að eyða miklum fjárhæðum í leikmenn svo þessum eltingaleik er hvergi nærri lokið.
Slapp
banner
banner