28.07.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Emma Sól aftur í Fylki (Staðfest)

Mynd: Fylkir

Mynd: Fylkir
Emma Sól Aradóttir hefur samið um að leika með Fylki út þetta tímabil.
Emma er fædd árið 2002 og leikur í vörninni. Hún á að baki yfir 90 leiki með HK og Fylki.
Hún lék með Fylki í Bestu deildinni sumarið 2024 en sneri aftur til HK fyrir þetta tímabil. Þar kom hún við sögu í fimm leikjum í deild- og bikar.
Nú er Emma komin aftur heim í Fylki og styrkir liðið fyrir úrslitakeppni 2. deildarinnar. Fylkiskonur enduðu í fjórða sæti með 26 stig og tryggðu sér þar með sæti í úrslitariðlinum þar sem liðið berst um sæti í Lengjudeildina.
Emma verður til taks þegar Fylkir heimsækir Fjölni í fyrsta leik úrslitakeppninnar 7. ágúst. Leikið verður á Extra-vellinum í Grafarvogi.