27.07.26 - 23:59
Brynjar Ingi Erluson
Atlético hafnaði fundarbeiðni Alvarez

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Spænska félagið Atlético Madríd hefur hafnað fundarbeiðni argentínska framherjans Julian Alvarez og hefur tjáð honum að hann verði að mæta til æfinga 10. ágúst næstkomandi.

TENGT EFNI
Alvarez gefst ekki upp - Ætlar að upplifa drauminn
Alvarez hefur farið fram á að verða seldur frá Atlético enda vill hann ólmur ganga til liðs við Barcelona.
Argentínumaðurinn er algert forgangsmál hjá Börsungum í sumar en tilraunir félagsins til að kaupa hann hafa enn ekki borið árangur.
Barcelona lagði fram rúmlega 100 milljóna evra tilboð sem Atlético hafnaði. Talið er að Spánarmeistararnir séu tilbúnir að hækka tilboðið í allt að 150 milljónir evra.
Alvarez reynir allt hvað hann getur til að komast frá Atlético en samkvæmt spænska blaðamanninum Gerard Romero hafnaði félagið beiðni hans um fund með stjórninni.
Þess í stað fékk hann þau skilaboð að stjórnarmenn Atlético væru ekki tilbúnir að setjast niður og ræða framtíð hans. Þá var honum gert ljóst að hann ætti að mæta aftur til æfinga 10. ágúst.
Afstaða Atlético hefur verið skýr í allt sumar. Félagið vill alls ekki selja Alvarez til Barcelona en ekki er útilokað að tónninn breytist þegar nær dregur lokum félagaskiptagluggans.