28.07.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Klara Kristín í Aftureldingu (Staðfest)

Mynd: Afturelding

Mynd: Afturelding
Afturelding fékk á dögunum Klöru Kristínu Kjartansdóttur á láni frá Stjörnunni.
Klara er 16 ára gömul og uppalin hjá Stjörnunni, en hún spilar sem framherji. Undanfarin tvö sumur hefur hún leikið með Álftanesi og skorað 15 mörk í 35 leikjum.
Síðasta vetur samdi hún við akademíu portúgalska stórliðsins Benfica í Bandaríkjunum. Þá á hún að baki þrjá leiki fyrir U15-ára landslið Íslands.
Klara hefur þegar leikið fjóra leiki með Aftureldingu í 2. deildinni og skorað eitt mark.
Afturelding missti naumlega af sæti í A-riðlinum þar sem barist verður um sæti í Lengjudeildinni. Liðið endaði í fimmta sæti deildarkeppninnar og leikur því í B-riðlinum.
Fyrsti leikurinn þar verður gegn KÞ á Malbikstöðinni að Varmá 8. ágúst.