Fotbolti.net
01.08.12 - 06:00
Elvar Geir Magnússon

Pétur Ásbjörn til Völsungs (Staðfest)

Pétur Ásbjörn til Völsungs (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Pétur Ásbjörn Sæmundsson er genginn til liðs við Völsung á Húsavík og mætti á sínu fyrstu æfingu með liðinu í gær.
Pétur kemur á láni frá Álftanesi en hann hefur einnig spilað fyrir Hamar, Markaregn og Hauka þar sem hann á að baki leiki í Pepsi-deild karla og 1. deild.

Pétur sem er fæddur 1989 er miðjumaður en getur sömuleiðis spilað vörn.

Völsungur mætir Gróttu á útivelli í kvöld er 14 umferð 2. deildar fer fram og að öllum líkindum spilar hann sinn fyrsta leik fyrir félagið þar.

Þess má geta að Pétur er sonur Sigríðar Klingenberg spákonu.

Völsungur er í 2. sæti 2. deildar sem stendur og í harðri baráttu um að komast upp.

Heimild: Græni herinn

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.