Fotbolti.net
15.11.26 - 14:55
Brynjar Ingi Erluson

Stærsta tap Portúgals í 24 ár

Stærsta tap Portúgals í 24 ár
Canon

Mynd: EPA

Portúgalska landsliðið mátti þola afhroð á heimavelli í gær þegar Danir unnu óvæntan 4-1 sigur í Þjóðadeildinni í Braga.
Þjóðadeildin: Danir léku sér að Portúgölum
TENGT EFNI

Þjóðadeildin: Danir léku sér að Portúgölum

Þetta var fyrsti leikur Portúgala síðan Cristiano Ronaldo lagði landsliðsskóna á hilluna og var leikurinn sérstaklega tileinkaður honum. Ronaldo var heiðraður bæði fyrir leik og á meðan honum stóð, þrátt fyrir að vera ekki sjálfur viðstaddur.

Portúgalar hefðu þó vart getað kvatt goðsögnina á verri hátt, enda hrundi leikur liðsins og niðurstaðan varð óvænt 4-1 tap.

Tapið var það stærsta hjá Portúgal á heimavelli síðan árið 2002 þegar liðið tapaði einmitt 4-1 fyrir Finnlandi í vináttulandsleik í Porto. Þar áður hafði Portúgal tapað 4-0 fyrir Brasilíu í vináttulandsleik í Coimbra árið 1989.

Stærsta heimavallartap í sögu portúgalska landsliðsins kom hins vegar í maí árið 1947 þegar Englendingar gjörsigruðu Portúgala, 10-0, í Lissabon. Stanley Mortensen og Tom Lawton skoruðu þá fjögur mörk hvor fyrir framan 65 þúsund áhorfendur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.