01.08.12 - 15:15
Elvar Geir Magnússon
James Collins til West Ham (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
James Collins er kominn aftur til West Ham frá Aston Villa. Þessi 28 ára varnarmaður frá Wales hefur skrifað undir fjögurra ára samning við Hamrana, þremur árum eftir að hafa yfirgefið félagið.
Við undirskriftina sagði Collins að það væri frábært að vera kominn aftur og sjá kunnugleg andlit. Hann náði góðu sambandi við stuðningsmenn þegar hann var síðast hjá Hömrunum og vonast til að ná að endurnýja þau tengsli.
„Ég vildi í raun og veru ekki fara 2009, ég held að allir viti að. Nú er ég kominn aftur og liðið er betra. Ég get ekki beðið eftir því að sýna stuðningsmönnum að ég er orðinn betri leikmaður,\" segir Collins.