Fotbolti.net
01.08.12 - 15:27
Magnús Már Einarsson

Ron Vlaar í Aston Villa (Staðfest)

Ron Vlaar í Aston Villa (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Aston Villa hefur gengið frá kaupum á hollenska varnarmanninum Ron Vlaar en hann kemur frá Feyenoord.

Þessi 27 ára gamli leikmaður skrifaði undir þriggja ára samning við Aston Villa.

Vlaar er miðvörður en hann var í byrjunarliði í tveimur af þremur leikjum Hollendinga í riðlakeppni EM í sumar.
,,Ég ætla að reyna að feta í fótspor Paul McGrath, Olof Mellberg og Martin Laursen, þeir voru allir frábærir leikmenn,\" sagði Vlaar eftir að hann skrifaði undir.

Aston Villa hefur misst bæði Carlos Cuellar og James Collins úr vörninni í sumar en Vlaar á að fylla skarðið sem þeir skilja eftir sig.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.