Fotbolti.net
01.08.17 - 01:00
Arnar Daði Arnarsson

Atli Sigurjóns í Þór (Staðfest)

Atli Sigurjóns í Þór (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Miðjumaðurinn Atli Sigurjónsson hefur skrifað undir lánssamning við uppeldisfélag sitt Þór Akureyri út sumarið. Atli kemur á láni frá KR.

Þetta staðfesti Atli í samtali við Kaffið.is rétt í þessu. Atli spilaði síðast fyrir Þór árið 2011 og á 87 leiki að baki með liðinu.
Þetta er mikill liðsstyrkur fyrir Þórsara sem sitja í 4. sæti Inkasso deildarinnar með 25 stig þrem stigum frá 2. sæti deildarinnar.

Atli hefur einungis komið við sögu í tveimur leikjum í Pepsi deildinni fyrir KR ásamt því að spila í Borgunarbikarnum og Evrópukeppni. Atli gekk til liðs við KR frá Breiðablik fyrir núverandi tímabil.

Þór mætir Haukum í mikilvægum leik á miðvikudaginn á Gaman ferða vellinum í Hafnarfirði en bæði lið eru í baráttu um að vera með í toppbaráttunni.

Heimild: Kaffið.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.