Fotbolti.net
01.08.17 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Fulham kaupir Aboubakar Kamara (Staðfest)

Fulham kaupir Aboubakar Kamara (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Fulham hefur keypt franska sóknarmanninn Aboubakar Kamara.

Hann skrifaði undir fjögurra ára samning við Fulham, en hann kemur til Lundúnarliðsins frá Amiens SC í Frakklandi.
Kamara, sem er 22 ára gamall, skoraði 11 mörk í 29 leikjum fyrir Amiens á síðasta tímabili og hjálpaði liðinu að vinna sér sæti í deild þeirra bestu á Frakklandi. Hann mun þó ekki hjálpa liðinu að halda sæti sínu í frönsku úrvalsdeildinni á næsta tímabili.

„Aboubakar kemur með mikinn hraða í framlínuna. Hann er líka góður í að klára færin sín,\" sagði Tony Khan, formaður Fulham.

Ragnar Sigurðsson leikur með Fulham, sem hefur leik í Championship-deildinni um næstu helgi gegn Norwich.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.