Liverpool FC er búið að kynna nýjar treyjur sínar fyrir næsta keppnistímabil. Þær eru framleiddar af Nike en undanfarin ár hafa treyjur félagsins verið framleiddar af New Balance.
Nýju treyjurnar eru á leið í búðir og er hægt að forpanta þær í gegnum vefsíðu Liverpool eða Nike eða beint í gegnum endursöluaðila.
„Ég hef verið partur af Nike fjölskyldunni í smá tíma og það er frábært. Ég veit mjög vel að Nike er leiðandi í hönnun og nýsköpun á íþróttatreyjum. Það verður sérstakt að mæta út á völlinn í þessum treyjum, sem Englandsmeistarar, á næstu leiktíð," sagði Virgil van Dijk.
Treyjan heldur í hefðir Liverpool og er allt frá leturstærð að litavali grandskoðað til að láta minna á Liverpool og Anfield.
Stuðningsmenn geta þá keypt sérstakar merkingar til að setja á búninginn eftir að Liverpool vann HM félagsliða og ensku úrvalsdeildina á leiktíðinni.
THE. WAIT. IS. OVER. 🙌
— Liverpool FC (Premier League Champions 🏆) (@LFC) August 1, 2020
Our new 2020/21 @NikeFootball home kit 🔴 #TellUsNever
Athugasemdir