Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 01. ágúst 2022 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Leikmenn enska liðsins reyndu að stelast í upplýsingar frá Martina
Ella Toone
Ella Toone
Mynd: EPA

Það kom upp ansi skondið atvik í úrslitaleik EM kvenna í gærkvöldi.


Í síðari hálfleik framlengingarinnar kom Lena Lattwein inná í liði Þýskalands en hún kom með upplýsingar á blaði sem Martina Voss-Tecklenburg þjálfari liðsins var búinn að skrifa til leikmanna liðsins.

Ella Toone og Alessia Russo leikmenn enska liðsins reyndu að lesa á blaðið en það er spurning hversu sleipar þær eru í þýskunni.

Atvikið má sjá hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner