Fotbolti.net
14.09.26 - 12:17
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Galdur að spila vel og hugurinn leitar út

Ég vissi sjálfur að ég gæti gert þessa stöðu að minni

Mér fannst það svínvirka í gær.

Mér fannst það svínvirka í gær.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Galdur Guðmundsson átti góðan leik fyrir KR í gær þegar liðið vann öruggan 5-1 sigur á ÍA í 23. umferð Bestu deildarinnar. Galdur skoraði tvö mörk og var valinn næstbesti maður vallarins af Elízu Gígju Ómarsdóttur sem fjallaði um leikinn hér á Fótbolta.net.

„Hefur heldur betur stigið upp síðan þeir misstu Amin Cosic og hélt uppteknum hætti í dag. Fyrra markið hans mjög vel tekið og var svo grimmur í seinna markinu," skrifaði Elíza.

Fótbolti.net ræddi við kantmanninn í dag. Hann hefur skorað fimm mörk og lagt upp fjögur í tíu byrjunarliðsleikjum í Bestu deildinni.
Lestu um leikinn: KR 5 - 1 ÍA
„Leikurinn var bara mjög góður af okkar hálfu fannst mér, við vissum að við þurftum að svara fyrir síðasta leik upp á Skaga og mér fannst við gera það virkilega vel. Gott að fá Skagamenn strax aftur til að svara þeim strax," segir Galdur en KR tapaði gegn ÍA á Akranesi fyrir rúmri viku síðan.

Galdur er sáttur með eigin frammistöðu í leiknum.

„Heilt yfir já, ég og Luke skiptum um kant og ég fékk að prófa hægri vænginn. Mér fannst það svínvirka í gær."

„Ég er ánægður að skora tvö mörk, það er alltaf gaman að skora og ég er sérstaklega sáttur með seinna markið. Það er alltaf talað um að vera mættur á fjær í þessi „auðveldu mörk" og ég er ánægður með að hafa verið klár á þessu augnabliki. Það skilar sér alltaf að vera mættur."


Eftir að Amin Cosic var seldur til Viking í Noregi hefur hlutverk Galdurs stækkað til muna.

„Mér finnst ég hafa komið vel inn í liðið frá því að Amin fór. Ég vissi sjálfur að ég gæti gert þessa stöðu að minni um leið og Amin fór og það var það sem ég ætlaði að gera. Svo er fótbolti leikur sjálfstrausts, fékk það eiginlega strax í fyrsta byrjunarliðsleik á móti Þór úti þar sem ég skorað."

Hefur þú einherja skoðun á hægri eða vinstri kantinum?

„Maður er meira í boltanum vinstra megin þar sem við reynum að fara með fleiri menn vinstra megin og mér finnst við vera orðnir mjög góðir í því. Mér finnst persónulega betra að spila vinstra megin en það er ekkert mál að breyta til og fara á hægri eins og í gær."

Galdur var fenginn í KR frá danska félaginu Horsens. Hann er uppalinn hjá ÍBV og Breiðabliki og var á mála hjá FC Kaupmannahöfn áður en hann fór til Horsens. Leitar hugurinn aftur út?

„Hugurinn leitar alltaf út en mér finnst mjög mikilvægt að það sé rétt lið, ekki bara fara út til að fara út. Ég hef upplifað það að vera úti og líða ekki vel, þannig mér finnst mjög mikilvægt að velja rétt lið fyrir mig og taka tíma í það."

Fjórir leikir eru eftir af tímabilinu. KR er í 2. sæti sem stendur, sex stigum frá Víkingi og tveimur stigum fyrir ofan Fram en bæði lið eiga leik til góða á KR. Hvað vill Galdur fá út úr lokaleikjunum?

„Fjórir síðustu leikirnir í deildinni snúast bara um að klára deildina vel. Við skuldum sjálfum okkur að klára deildina almennilega og klára mjög fínt tímabil," segir Galdur sem á að baki einn leik með U21 landsliðinu og alls 19 leiki fyrir yngri landsliðin.
Það er alltaf talað um að vera mættur á fjær í þessi „auðveldu mörk

Það er alltaf talað um að vera mættur á fjær í þessi „auðveldu mörk

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gott að fá Skagamenn strax aftur til að svara þeim strax

Gott að fá Skagamenn strax aftur til að svara þeim strax

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ég vissi sjálfur að ég gæti gert þessa stöðu að minni

Ég vissi sjálfur að ég gæti gert þessa stöðu að minni

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Við skuldum sjálfum okkur að klára deildina almennilega og klára mjög fínt tímabil

Við skuldum sjálfum okkur að klára deildina almennilega og klára mjög fínt tímabil

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.