Fotbolti.net
01.09.12 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð

Vadis Odjidja-Ofoe til Everton (Staðfest)

Vadis Odjidja-Ofoe.

Vadis Odjidja-Ofoe.

Canon

Mynd: Getty Images

Everton staðfesti í nótt að félagið hafi náð að ganga frá samningum við Vadis Odjidja-Ofoe áður en félagaskiptaglugginn lokaði klukkan 23:00 að enskum tíma í gærkvöldi.
Þessi belgíski landsliðsmaður kemur frá Club Bruges á láni út komandi leiktíð og í kjölfarið hefur Everton möguleika á að kaupa hann.

Ofoe verður sjöttu kaup Everton í sumar. Hjá Everton hittir hann fyrir tvo landa sína úr belgíska landsliðinu, þá Marouane Fellaini og Kevin Mirallas.

Hann er 23 ára gamall og hóf feril sinn hjá Gent áður en hann fór til Anderlecht. Hann kom til Bruges frá Hamburg í Þýskalandi fyrir þremur árum síðan og spilaði 117 leiki fyrir félagið.

Heimild: Vefur Everton

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.