Fotbolti.net
01.09.12 - 19:00
Brynjar Ingi Erluson

El-Hadji Diouf semur við Leeds (Staðfest)

El-Hadji Diouf er búinn að semja við Leeds

El-Hadji Diouf er búinn að semja við Leeds

Canon

Mynd: Getty Images

Senegalski leikmaðurinn El-Hadji Diouf hefur samið við Leeds United í ensku fyrstu deildinni, en hann verður hjá félaginu næstu mánuðina.
Diouf, sem er 31 árs gamall, hefur verið á mála hjá Leeds frá því í sumar, þar sem hann hefur ekki verið á samning en samt leikið með liðinu og skoraði meðal annars í 3-3 jafntefli gegn Blackburn Rovers í dag.

Hann hefur nú samið við Leeds þar til í janúar, en hann var síðast á mála hjá Doncaster Rovers.

Hann hefur þá leikið með Liverpool, Blackburn Rovers og Glasgow Rangers meðal annars, en núna fær hann tækifæri til að sanna sig hjá Warnock, sem einmitt fór ekki svo fögrum orðum um Diouf hér um árið er hann kallaði leikmanninn ræsisrottu.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.