Fotbolti.net
01.09.17 - 19:00
Brynjar Ingi Erluson

Adrien Silva fer til Leicester

Adrien Silva er á leið til Leicester

Adrien Silva er á leið til Leicester

Canon

Mynd: Getty Images

Portúgalski miðjumaðurinn Adrien Silva mun leika fyrir Leicester City á Englandi. Enska félagið staðfesti það nú rétt í þessu en félagið fékk frest til þess að ganga frá samningum við hann.
Silva, sem er 28 ára gamall, var partur af portúgalska landsliðshópnum sem hann Evrópumótið í Frakklandi á síðasta ári en hann hefur spilað lykilhlutverk í liði Sporting Lisbon.

Hann er fæddur í Frakklandi og hóf feril sinn með unglingaliði Bordeaux áður en hann fór ungur til Portúgals. Hann ákvað eftir langa veru þar að spila fyrir Portúgal.

Leicester var í viðræðum við Sporting um leikmanninn en samningar drógust á langinn og bað félagið um tveggja tíma frest til þess að ganga frá hans málum og var það samþykkt.

Óvíst var hvort skipti hans myndu fara í gegn en Leicester staðfestir nú að leikmaðurinn spili fyrir félagið á komandi leiktíð. Hann var keyptur á 22 milljón punda og leysir Danny Drinkwater af hólmi sem samdi við Chelsea.

Samkvæmt fréttastofu Sky Sports þá ganga kaupin hins vegar ekki í gegn fyrr en í næstu viku. Því eru þau ekki fullkomlega staðfest og verður því (Staðfest) sviginn að bíða í nokkra daga.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.