01.09.17 - 07:46
Elvar Geir Magnússon
Drinkwater til Chelsea (Staðfest)

Drinkwater er 27 ára.

Mynd: Getty Images

Drinkwater er 27 ára.

Mynd: Getty Images
Chelsea hefur gengið frá kaupum á miðjumanninum Danny Drinkwater frá Leicester á um 35 milljónir punda. Gengið var frá málum í nótt.
Drinkwater skrifaði undir fimm ára samning en í dag er búist við því að Leicester tilkynni um kaup á Portúgalanum Adien Silva frá Sporting Lissabon.
Hlutirnir gengu ekki að óskum Chelsea á Gluggadeginum, félagið missti af Fernando Llorente sem fór til Tottenham og Ross Barkley hafnaði því að fara til félagsins þrátt fyrir að Everton hafi samþykkt tilboð.
Chelsea náði þó að landa Davide Zappacosta frá Torino á 23 milljónir punda en hann á að veita VIctor Moses samkeppni í hægri bakverðinum.
Drinkwater segist í skýjunum með að vera orðinn leikmaður Chelsea og að markmið hans sé að hjálpa félaginu að vinna fleiri titla.
Drinkwater er enskur landsliðsmaður sem hóf sinn feril hjá Manchester United áður en hann fór til Leicester í janúar 2012. Hann og N\'Golo Kante eru sameinaðir á ný hjá Chelsea en þeir mynduðu öflugt teymi þegar Leicester varð Englandsmeistari í fyrra.