01.09.17 - 14:56
Magnús Már Einarsson
Hólmar Örn til Levski Sofia á löngum lánssamningi (Staðfest)

Hólmar Örn Eyjólfsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hólmar Örn Eyjólfsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hólmar Örn Eyjólfsson hefur gengið til liðs við Levski Sofia í Búlgaríu. Hólmar kemur á fjögurra ára lánssamningi frá Maccabi Haifa í Ísrael.
Hólmar kom til Maccabi Haifa frá Rosenborg í lok síðasta árs. Hann var hins vegar úti í kuldanum þar eftir þjálfarabreytingar í sumar. Sex erlendir leikmenn mega vera hjá hverju félagi í Ísrael en á endanum fékk Hólmar að fara á löngum lánssamningi. Maccabi getur ekki kallað hann til baka úr láni.

„Nýi þjálfarinn vildi fá sex erlenda leikmenn sem hann veldi sjálfur og þessvegna eru allir útlendingarnir sem voru í röðum félagsins farnir. Forráðamenn Haifa vildu fá eina milljón evra fyrir mig en um leið var erfitt fyrir önnur félög að kaupa mig í lok félagaskiptagluggans vegna útlendingakvótans. Á endanum var lausnin sú að fara á fjögurra ára lán, því þeir vildu ekki hafa eina milljón evra í mínus í sínum bókum,\" sagði Hólmar við mbl.is um félagaskiptin.
Hinn 27 ára gamli Hólmar hefur einnig leikið með West Ham, Cheltenham, Roeselare og Bochum erlendis.
Levski Sofia er í 5. sæti í búlgörsku deildinni eftir sjö umferðir en liðið á leik til góða. Sigur þar myndi koma liðinu upp að hlið CSKA Sofia á toppnum.
Þjálfari Levski er Delio Rossi, fyrrum þjálfari Lazio og Fiorentina. Á meðal leikmanna liðsins er spænski miðjumaðurinn Jordi Gomez sem spilaði áður með Wigan og Sunderland.