Fotbolti.net
01.09.17 - 19:30
Brynjar Ingi Erluson

Loic Remy til Las Palmas (Staðfest)

Loic Remy er kominn til Las Palmas. Diego Costa fylgir honum líklega í spænsku deildina.

Loic Remy er kominn til Las Palmas. Diego Costa fylgir honum líklega í spænsku deildina.

Canon

Mynd: Getty Images

Spænska úrvalsdeildarfélagið Las Palmas hefur gengið frá kaupum á franska framherjanum Loic Remy frá Chelsea. Hann gerir tveggja ára samning.
Remy gerði garðinn frægan með Marseille í Frakklandi áður en hann samdi við QPR. Eftir ágætis fyrsta tímabil þar sem hann skoraði sex mörk í fjórtán leikjum var hann lánaður í kjölfar þess að QPR féll niður um deild.

Hann blómstraði hjá Newcastle þar sem hann gerði fjórtán mörk í 27 leikjum. Hann var síðan seldur til Chelsea eftir tímabilið náði aldrei að stimpla sig almenninlega inn þar.

Eftir tvö tímabil var hann lánaður til Crystal Palace áður en hann var seldur í dag til Las Palmas.

Hann gerði tveggja ára samning við spænska félagið en það eru líkur á því að hann sé ekki eini framherjinn sem Chelsea losar sig við í dag þar sem Diego Costa gæti farið til Atlético Madrid.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.