01.09.17 - 08:02
Elvar Geir Magnússon
Sakho til Crystal Palace (Staðfest)

Benteke og Sakho.

Mynd: Getty Images

Benteke og Sakho.

Mynd: Getty Images
Crystal Palace staðfest í nótt kaup á varnarmanninum Mamadou Sakho frá Liverpool á 26 milljónir punda.
Sakho þekkir vel til á Selhurst Park en hann var hluta síðasta tímabils á láni á Selhurst Park.
Palace var orðað við marga varnarmenn á Gluggadeginum en Sakho var alltaf efstur á óskalistanum. Hann hefur skrifað undir fimm ára samning.
Sakho hefur verið úti í kuldanum á Anfield síðan samband hans og Jurgen Klopp stirðnaði þegar leikmaðurijnn mætti of seint á æfingu í æfingaferði í Bandaríkjunum og var sendur aftur til Englands.
Hann kom til Palace í janúar og hjálpaði Sam Allardyce og hans liði að halda sæti sínu í úrvalsdeildinni.
Sakho er næst dýrasti leikmaður í sögu Palace en Christian Benteke var keyptur frá Liverpool á 27 milljónir punda síðasta sumar.
Frank de Boer tók við stjórnartaumunum hjá Palace eftir síðasta tímabil en Palace hefur tapað fyrstu þremur leikjum sínum og hefur ekki náð að skora deildarmark síðan Hollendingurinn tók við af Stóra Sam.
Palace reyndi að fá Oumar Niasse frá Everton en það rann út í sandinn.