Fotbolti.net
01.09.18 - 13:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Hinn 38 ára gamli Tim Cahill til Indlands (Staðfest)

Hinn 38 ára gamli Tim Cahill til Indlands (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Tim Cahill, markahæsti leikmaðurinn í sögu ástralska landsliðsins, mun líklega enda feril sinn í Indlandi eftir að hann skrifaði undir samning við Jamshedpur þar í landi.
Hinn 38 ára gamli Cahill fór með Áströlum á HM í sumar en eftir mótið tilkynnti hann það að hann væri hættur að spila með landsliðinu.

Hann er þó ekki alveg tilbúinn að leggja skóna á hilluna strax og hefur því skrifað undir í Indlandi.

Cahill var síðast á máli hjá Milwall í Englandi, en hann lék lengi með Everton. Á ferlinum hefur hann einnig spilað í Bandaríkjunum, í Kína og í heimalandi sínu, Ástralíu.

Cahill ætlar að taka slaginn í indversku ofurdeildinni á næsta leiktíð en þar mun hann mæta Kerala Blasters. David James er þjálfari liðsins og Hermann Hreiðarsson aðstoðarþjálfari. Þá spilaði Guðjón Baldvinsson með liðinu á síðasta tímabili, á láni frá Stjörnunni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.