01.09.18 - 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
PSG fékk Choupo-Moting frá Stoke (Staðfest) - Bernat kominn

Choupo-Moting mun spila með mönnum á borð við Neymar, Mbappe og Cavani.

Mynd: Getty Images

PSG staðfesti kaup á Eric Maxim Choupo-Moting og Juan Bernat rétt fyrir lok sumargluggans í gærkvöldi.
Choupo-Moting kemur frá Stoke City sem féll úr ensku úrvalsdeildinni í fyrra.
Hann var fenginn til liðsins frá Schalke síðasta sumar og skoraði 5 mörk í 30 úrvalsdeildarleikjum.
Bernat kemur frá Bayern München þar sem hann hefur spilað 111 leiki undanfarin fjögur tímabil. Hann fékk aðeins að spila 12 leiki á síðasta tímabili og er ekki í áformum Niko Kovac sem tók við þjálfarastöðunni í sumar.
Choupo-Moting, 29 ára, kemur frítt frá Stoke sem réði ekki við að borga honum laun. Hann skrifaði undir tveggja ára samning við Frakklandsmeistarana.
PSG greiðir um 10 milljónir evra fyrir Bernat sem skrifar undir þriggja ára samning. Bernat er 25 ára gamall og gerði góða hluti hjá Valencia áður en hann var fenginn til Bayern.