01.10.12 - 19:52
Magnús Már Einarsson
Bjarni Jó hættur með Stjörnuna (Staðfest)

Bjarni Jóhannsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bjarni Jóhannsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bjarni Jóhannsson er hættur sem þjálfari Stjörnunnar eftir fimm ára starf hjá félaginu. Bjarni tilkynnti leikmönnum Garðabæjarliðsins þessa ákvörðun sína á æfingu í kvöld.
Bjarni tók við Stjörnunni haustið 2007 og kom liðinu ári síðar upp í Pepsi-deildina.
Í sumar var fór liðið í bikarúrslit undir hans stjórn og endaði í fimmta sæti Pepsi-deildarinnar eftir 2-0 tap gegn Breiðabliki í lokaumferðinni um helgina.
Undanfarið hefur Bjarni verið sterklega orðaður við KA en Akureyrarliðið er í leit að eftirmanni Gunnlaugs Jónssonar þessa dagana.
Heimir Hallgrímsson, aðstoðarlandsliðsþjálfari Íslands, er efstur á óskalista Stjörnumanna til að taka við starfinu af Bjarna en það ætti að skýrast á næstu dögum hvort hann taki við liðinu eða ekki.