01.10.12 - 23:41
Hafliði Breiðfjörð
Eiður Smári til Cercle Brugge (Staðfest)

Eiður Smári hefur samið við Cercle Brugge í Belgíu út tímabilið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eiður Smári Guðjohnsen er genginn til liðs við belgíska félagið Cercle Brugge og hefur samið við félagið út þessa leiktíð. Félagið staðfesti þetta í dag.
Eiður Smári hefur verið félagslaus síðan í vor þegar hann komst að samkomulagi við AEK í Grikklandi um að rifta samningi sínum.
Hann hefur hinsvegar ekki spilað fótboltaleik síðan í október á síðasta ári þegar hann tví fótbrotnaði í leik með AEK, utan eins vináttulandsleiks gegn Færeyjum í ágúst.
Eiður Smári sem er 34 ára gamall hefur á ferli sínum leikið með PSV Eindhoven, Bolton, Chelsea, Barcelona, Monaco, Tottenham, Stoke, Fulham og AEK í Aþenu auk Vals og KR hér heima.
er haft eftir Eiði Smára í belgískum fjölmiðlum. ,,Ég er meiðslalaus en ég á enn nokkar vikur í land áður en ég verð tilbúinn að spila.\"

Heimild: HLN.be