Fotbolti.net
01.11.12 - 11:00
Magnús Már Einarsson

Pétur Svans og Steinarr í Leikni (Staðfest)

Vigfús framlengir

Pétur Svansson.

Pétur Svansson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Pétur Örn Svansson og Steinarr Guðmundsson hafa ákveðið að taka skóna af hillunni og leika með Leiknismönnum næsta sumar.

Steinarr er 31 árs gamall vinstri bakvörður en hann tók sér frí frá fótbolta í sumar.

Steinarr er fjórði leikjahæsti leikmaður Leiknis í sögunni en hann hefur spilað 136 leiki með félaginu.
Pétur er 28 ára gamall kantmaður en hann lék síðast með Leikni sumarið 2006.

Hann lék síðan fjögur tímabil með Víkingi áður en hann fór út í nám og því hefur hann verið í fríi frá fótbolta undanfarin tvö ár.

Þá hefur Vigfús Arnar Jósefsson fyrirliði Leiknis undanfarin ár endurnýjað samning sinn við félagið. Nýji samningurinn er til þriggja ára eða til loka leiktíðar 2015.

Heimild: Heimasíða Leiknis

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.