01.11.12 - 15:06
Magnús Már Einarsson
Atli Eðvaldsson tekinn við Reyni Sandgerði (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Atli Eðvaldsson hefur verið ráðinn þjálfari hjá Reyni Sandgerði en hann skrifaði undir þriggja ára samning við félagið á fréttamannafundi nú rétt í þessu.
Atli er afar reyndur þjálfari en hann þjálfaði meðal annars íslenska landsliðið frá 1999-2003.
Hann tekur við liðið Reynis af Jens Elvari Sævarssyni sem stýrði liðinu í sumar.
Atli er trúnaðarmaður Suð-Vesturlands á vegum KSÍ ásamt því að hann hefur verið að starfa við sérþjálfun.
Hann hefur áður þjálfað HK, KR, Fylki, ÍBV, Val og Þrótt. Hann lék á sínum tíma sem atvinnumaður í Þýskalandi við góðan orðstír og á 70 A-landsleiki að baki.
Reynir Sandgerði endaði í sjöunda sæti í annarri deildinni í sumar eftir að hafa verið á toppnum eftir fyrri umferðina.