Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 01. desember 2019 15:16
Brynjar Ingi Erluson
Krul varði vítaspyrnu frá Aubameyang - Fékk aðra tilraun og skoraði
Pierre-Emerick Aubameyang fékk aðra tilraun og skoraði
Pierre-Emerick Aubameyang fékk aðra tilraun og skoraði
Mynd: Getty Images
Norwich og Arsenal eru að gera 2-2 jafntefl í ensku úrvalsdeildinni en það gerðist ansi áhugavert atviki er Arsenal fékk vítaspyrnu í fyrri hálfleik.

Teemu Pukki kom Norwich yfir í leiknum áður en Arsenal fékk vítaspyrnu. Það var svo sem enginn að deila um vítaspyrnudóminn en Cristoph Zimmerman handlék knöttinn.

Tim Krul varði vítaspyrnuna frá Pierre-Emerick Aubameyang en þegar VAR hafði skoðað atvikið þá var Max Aarons kominn inn í teiginn áður en spyrnan var tekin og hafði þar áhrif á leikinn. Þessar reglur voru kynntar fyrir félögunum fyrir tímabilið.

Aubameyang fékk að taka spyrnuna aftur og skoraði örugglega. Todd Cantwell skoraði hins vegar undr lok hálfleiksins. Aubameyang er hins vegar búinn að jafna metin og staðan 2-2.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner