Barcelona ferðaðist til Búdapest í dag en liðið mætir Ferencvaros í Meistaradeildinni á morgun. Börsungar eru þegar komnir áfram í 16-liða úrslitin svo Ronald Koeman hvílir lykilmenn.
Lionel Messi, Marc-Andre Ter Stegen og Philippe Coutinho ferðuðust ekki með til Ungverjalands.
Barcelona er í sjöunda sæti í La Liga og á mikilvægan leik gegn Cadiz um næstu helgi.
Annars er það að frétta af Barcelona að Gerard Pique verður frá í einhverja mánuði vegna þeirra meiðsla sem hann hlaut gegn Atletico Madrid Samuel Umtiti og Ronald Araujo eru nálægt því að snúa aftur eftir meiðsli.
Athugasemdir