Fotbolti.net
02.01.19 - 14:45
Magnús Már Einarsson

Bruce tekinn við Sheffield Wednesday (Staðfest)

Mættur aftur!

Mættur aftur!

Canon

Mynd: Getty Images

Steve Bruce hefur verið ráðinn stjóri Sheffield Wednesday en félagið staðfesti þetta nú rétt í þessu.

Bruce mun þó ekki taka til starfa fyrr en 1. febrúar en fram að því munu Steve Agnew og Stephen Clemence stýra liðinu en þeir hafa lengi verið aðstoðarmenn Bruce hjá öðrum félögum.
Jos Luhukay var rekinn frá Sheffield Wednesday í síðasta mánuði og Bruce er nú tekinn við. Bruce var sjálfur rekinn frá Aston Villa í október en hann hefur verið atvinnulaus síðan þá.

Bruce er mikill reynslubolti í Championship deildinni en hann hefur fjórum sinnum stýrt liði upp í ensku úrvalsdeildina.

Sheffield Wednesday er í 16. sæti í Championship deildinni en liðið er taplaust í síðustu fjórum leikjum.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.