Fotbolti.net
02.01.19 - 13:12
Magnús Már Einarsson

Grindavík fær markvörð frá Serbíu (Staðfest)

Grindavík fær markvörð frá Serbíu (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Grindavík hefur fengið serbneska markvörðinn Vladan Djogatovic í sínar raðir. Vladan er 34 ára gamall en hann gerði tveggja ára samning við Grindavík.

Hann á að fylla skarð Kristijan Jajalo sem yfirgaf herbúðir Grindavíkur eftir síðasta tímabil.
Vladan kemur til Grindvíkinga frá FK Javor í Serbíu. Hann hefur spilað 23 leiki í haust með þeim og er liðið sem stendur í efsta sæti í serbnesku fyrstu deildinni.

Vladan er reynslumikill markmaður en hann hefur spilað vel á þriðja hundrað leiki í efstu deildum í Serbíu.

„Við bjóðum Vladan velkominn til Grindavíkur," segir á Facebook síðu Grindavíkur.

Komnir:
Vladan Djogatovic frá Serbíu

Farnir:
Björn Berg Bryde í Stjörnuna
Brynjar Ásgeir Guðmundsson í FH
Kristijan Jajalo
Sam Hewson í Fylki
Sito til Bandaríkjanna
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.