02.01.19 - 07:30
Arnar Helgi Magnússon
Holgate til WBA á láni (Staðfest)

Orðaskipti Holgate og Firmino

Mynd: Getty Images

Orðaskipti Holgate og Firmino

Mynd: Getty Images
Mason Holgate hefur verið lánaður til WBA út leiktíðina frá Everton. Hann var þó ekki í leikmannahóp WBA sem að mætti Blackburn í gær.
Holgate er fæddur árið 1996 og hann lék upp alla yngri flokka með Barnsley áður en hann var fenginn til Everton árið 2015.
Tækifæri Holgate með Everton hafa ekki verið nein á tímabilinu en í fyrra lék hann 15 leiki í úrvalsdeildinni fyrir liðið.
„Ég er búinn að fylgjast með liðinu í sjónvarpinu nánast allar helgar á tímabilinu. Ég er að koma í gott lið þar sem að markmiðið er að fara upp í úrvalsdeildina aftur," segir Holgate í sínu fyrsta viðtali sem leikmaður WBA.
„Þeir hafa verið að spila flottan bolta í erfiðri deild og ég get ekki beðið eftir því að byrja að spila með liðinu."
Holgate verður að öllum líkindum í leikmannahópi WBA sem að mætir Wigan í FA bikarnum um helgina.

"I’m joining a good team and I know everyone’s aim here is promotion."
— West Bromwich Albion (@WBA) December 31, 2018
Mason Holgate's first interview... 💬#WBA https://t.co/acehM7jixt