Fotbolti.net
02.02.19 - 12:28
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Arnór Gauti í Fylki (Staðfest)

Arnór Gauti er farinn í Fylki.

Arnór Gauti er farinn í Fylki.

Canon

Mynd: Fylkir

Sóknarmaðurinn Arnór Gauti Ragnarsson var að semja við Fylki. Hann kemur í Árbæinn frá Breiðabliki.
Arnór skrifar undir þriggja ára samning við Fylki.

Arnór, sem er fæddur 1997, spilaði 16 leiki með öflugu liði Breiðabliks í fyrra. Hann hefur spilað 72 leiki í meistaraflokki og skorað í þeim 10 mörk með Breiðabliki, ÍBV og Selfossi.

Arnór Gauti á að baki fimm leiki með U21 árs landsliði Íslands og einn leik með U-19 landsliðinu og skoraði hann tvö mörk í þeim leikjum.

„Við bjóðum Arnór Gauta velkominn í Fylki og þökkum Breiðablik fyrir góð vinnubrögð í kringum félagaskiptin," segir í tikynningu Fylkis sem hafnaði í áttunda sæti síðasta sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.