Fotbolti.net
02.02.19 - 10:30
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Bordeaux nældi í Yacine Adli (Staðfest)

Bordeaux nældi í Yacine Adli (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Bordeaux náði að krækja í tvo unga leikmenn á lokadegi janúargluggans auk þess að halda Youssouf Sabaly innan sinna raða þrátt fyrir tilboð frá Fulham.
Yacine Adli, sem var hársbreidd frá því að skrifa undir hjá Arsenal síðasta sumar, kemur til félagsins frá PSG fyrir 5,5 milljónir evra og 40% af næstu sölu. Ungstirnið skrifaði undir samning til 2024.

Adli er 18 ára gamall miðjumaður sem hefur aðeins einu sinni komið við sögu með aðalliði PSG en þykir gríðarlega efnilegur.

Bordeaux festi þá einnig kaup á ítalska bakverðinum Raoul Bellanova, jafnaldra Adli, frá AC Milan.

Bellanova mun ljúka tímabilinu á láni hjá Milan en skiptir yfir til Frakklands næsta sumar. Hann er talinn afar efnilegur og er lykilmaður í U19 ára landsliði Ítala.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.