02.02.19 - 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Carlos Vinicius til Mónakó (Staðfest)

Mynd: Record

Mynd: Record
Mónakó er búið að tryggja sér brasilíska sóknarmanninn Carlos Vinicius á láni frá Napoli út tímabilið.
Thierry Henry hafði miklar mætur á sóknarmanninum eftir að hafa heyrt af frammistöðu hans með Rio Ave í portúgalska boltanum fyrir áramót.
Nú er Henry ekki lengur við stjórnvölinn en Leonardo Jardim virðist einnig hafa trú á Brassanum sem á að veita Radamel Falcao samkeppni.
Vinicius er 23 ára gamall og 190cm á hæð. Hann var keyptur til Napoli síðasta sumar fyrir 4 milljónir evra og lánaður til Rio Ave, þar sem hann gerði 14 mörk í 20 leikjum.
Vinicius er fjórði leikmaðurinn sem Mónakó fær á síðustu dögum eftir komu Adrien Silva, Gelson Martins og Georges-Kevin N'Koudou.